.
Arngunnur Árnadóttir er rithöfundur og tónlistarkona.
Hún lauk framhaldsnámi í klarínettuleik frá Hochschule für Musik Hanns Eisler í Berlín og hefur frá haustinu 2012 starfað sem fyrsti klarínettuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Fyrsta bók Arngunnar, Unglingar, kom út hjá Meðgönguljóðum í mars 2013. Haustið 2016 sendi hún frá sér sína fyrstu skáldsögu, Að heiman, en sú bók hlaut árið 2015 Nýræktarstyrk Miðstöðvar Íslenskra bókmennta. Haustið 2018 kom út þriðja bók Arngunnar og önnur ljóðabók, Ský til að gleyma.